HEIMSREISA!

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Heimsreisa

Tenglar

indland!

11. maí 2008 klukkan 08:48
Nu fer senn ad lida ad heimfor en adeins um vika i kuldann og goda matinn a islandi, jeijj.

Una Helga buin ad yfirgefa okkur og maett i oryggid a Froni.

Vid hofum tho ekki setid audum hondum frekar en fyrri daginn og eftir ad Una og Bjarma horfudu fra Kina heldum vid hinar afram gledinni. Arnar yfirgaf okkur svo lika 1.mai til ad taka thatt i einhverju gaeja moti, thannig ad vid vorum bara einar a bati.

Vid skodudum Summerpalace, roltum meira um a silkimarkadnum og nutum thaegjilega loftlagsins og goda matarins i Peking adur en haldid yrdi i steikina a Indlandi. Kina hefur thad lika fram yfir flesta adra ad agengnin er engin (ad silkimarkadnum undandskildum) Leigubilstjornarnir nenna ekki ad afgreida mann og tharf madur oftar en ekki ad berja tha til hlydni. Slikt er heldur betur ekki upp a teningnum a Indlandi svo vid hofum thad a hreinu.

3.mai heldum vid svo a flugvollinn thar sem okkur var tjad ad fluginu til Hong Kong myndi seinka um 3 tima sem ad endingu reyndust verda 5 timar, vid vorum thvi 4 timum of seinar i flugid til Delhi. Thar sem starfstulkan var ekki beint bjartasta von Kina gat hun ekki med nokkru moti aelt thvi ut ur ser ad um okkur yrdi sed i Hong Kong, thratt fyrir itrekadar tilraunir, hun sagdi bara "vid berum enga abyrgd". Vid lendinguna i Hong Kong kom annad i ljos og var okkur komid fyrir a luxus flugvallarhotelinu og sendar med fyrsta flugi til Delhi.

Vid lendinguna i Delhi tok a moti okkur 45 stiga hiti, storfurduleg menning og hin hefdbundna sorplykt i bland vid hland, mjog smekklegt. Vid komum okkur strax i oryggid a vel falda hostelinu okkur thar sem eigandinn tok vel a moti okkur og fylgdi okkur skjannahvitu islendingunum i hvert fotmal, enda vekjum vid vaegt til orda tekid sma athygli hvert sem vid forum. Hann kom okkur svo a thessa ultra mega tveggja daga turistaferd um helstu stadina vid Delhi og naerliggjandi borgir.

Thad sem vid ekki tokum i reikningin var fyrst og fremst thad ad hvitt folk er alika algeng sjon i Indlandi og snjor og areitid thvi i samraemi vid thad, ef vid svo mikid sem stadnaemumst i nokkrar sekundur eru 15 vafasamir einstaklingar maettir til ad bjoda fram "hjalp" sina. Svo er glapt og bent, en uppeldid hvad thad vardar virdist talsvert odruvisi en a islandi. Her eru bornin hvott til ad glapa a skritna hvita folkid og helst fa mynd af ser til minningar.

Vid vorum sem sagt einu utlendingarnir i hopnum, og hofum vid ferdina astamt vel skrudbunum Indverjum og havadasomum bornum theirra 6 um morguninn. Skodudum vid hvert menningarundrid a faetur odru m.a naest lengsta mur i heimi, og endalaust af hollum og hofum. Urdum meira ad segja vitni ad thvi thegar var verid ad taka upp Bollywood mynd, en ar hvert framleida Indverjar 1400 kvikmyndir. klukkan 19.00 var okkur svo skutlad a hrorlegt hotelid okkar i Jaipur. Una og Bjarma voru lika i Jaipur og kiktum vid i naan og karry a glaesilega Hotelinu theirra. Tokum ognvekjandi tuktuk badar leidir, en bilstjornarnir her a Indlandi eru svo hundrad sinnum agengari og meira otholandi en annars stadar Taelendingarnir eru bara englar i samanburdi.

Okkur var svo ruslad fram ur klukkan 3 um nottina og gledinni haldid afram. Seinni dagurinn var tho stormerkilegur skodudum Fatipur sikri, agraforte og Taj Mahal. Thar sem vid erum ju hvitar tha reiknar folk strax med thvi ad vid seum forrikar. Thess vegna faum vid aetid allt adra medferd en hinir ferdafelagarnir, gegn vaegu gjaldi ad sjalfsogdu. En holur i golfinu er ad theirra mati ekki hvitum monnum bjodandi og thvi vid leiddar a betra klosett. Settar einar med muslima guide ad skoda einhverja mosku gagngert i theim tilgangi ad vid myndum kaupa einhverjar ljotar filastyttur sem fjolskylda hans byr til. Eftir ad Anna hafdi storlega modgad manninn med thvi ad kalla hann solumann en ekki leidsogu mann fengum vid ad fara ut, og borga skopossunarmonnunum fyrir ad "passa" skona okkar. Fyrir tha sem ekki vita eru skor og draesur ekki leyfdar a heilogustu stodunum og vorum vid thvi ad steikjast ur hita i sidbuxum og stuttermabol.

Taj Mahal var an efa hapunkturinn enda eitt thad storfenglegasta sem vid hofum sed. Taj mahal var tho ekki eina sjonarspilid a svaedinu en vid skjannahvitu vorum alika vinsaelt myndefni hja Indverjunum sem hofdu aldrei sed annad eins. Okkur var farid ad lida eins og jolasveinum i kringlunni thegar folk var farid ad standa i rodum og bida eftir ad fa mynd af ser med okkur. An grins endudum vid i svona 30 fjolskyldualbumum thennan daginn. A leidinni heim ur skodunarferdinni var svo sogustund med skritnu utlendingunum og hrugadist folk aftast i rutuna til ad hlusta a okkur tala um Island, en thau attu ekki ord yfir thvi ad thad byggju bara 300.000 manns a Islandi, enda eru minnstu thorp a Indlandi med fleiri ibua. Um 1 um nott vorum vid svo komnar a Hotelid og daginn eftir kvoddum vid Unu og vid 4 flugum i paradisina Goa, sem er strandarherada a vesturstrondinni. Her hittum vid Sif, Dagbjortu og Soru, Steinunni, Thoru og Bigga. Seinni hopurinn er tho farin en vid 6 verdum her til loka reisunnar i solbadi og rolegheitum, thjotum svo um a vespunum okkar thegar okkur leidist.

Image and video hosting by TinyPic

Indland er buid ad vera mjog skemmtilegt en lika erfitt i thessum hita, og menningin er lika allt onnur en vid thekkjum ad heiman sem og annars stadar fra. Her er folk alltaf uppaklaett og einstaklega strangtruad og kyrnar rolta bara um i rolegheitunum i menguninni i Delhi sem og annars stadar enda mikilvaegari en madur sjalfur.

Vid kvedjum ad sinni komum nu liklega med eitt kvedjublogg i lokin voda gaman!

Anna, Tota, Asta og Bjarma
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
9 athugasemdir

Holy Cow!

04. maí 2008 klukkan 15:48
Her kemur faersla fra Indlandsforunum miklu.



Eins of fram kom kvoddum vid stelpurnar i Peking og heldum i aevintyrafor til Indlands. Vid flugum fra Peking til Delhi i gegnum Hong Kong. Fengum strax goda tilfinningu fyrir ferdinni en ferdafelagar okkar til Delhi voru af heldur odrum toga en vid eigum ad venjast. Their voru afskaplega kurteisir og brosmildir, annad en fulu Kinverjarnir. Til gamans ma nefna indverska albinoann sem sat fyrir framan okkur og feita Indverjann med demantana i eyrunum sem angadi af svitalykt og tafylu, nadi naestum ad yfirgnaefa karriilminn i loftinu, svo voru audvitad flestir med turban a hausnum.
Vid lentum i Delhi klukkan 2 um nott og thad var ekki nema 31 stiga hiti. Taegilega hlytt verdum vid ad segja........ Tha brunudum vid a lestarstodina thadan sem vid aetludum ad taka lest til Agra. A leidinni fengum vid sma menningarsjokk, en Indverjum finnst gott ad leggja sig a gangstettum, i straetoskylum og jafnvel a umferdareyjum. An efa voru nokkrir bunir ad geispa golunni midad vid likamlegt astand.
A lestarstodinni var audvitad allt lokad og allir sofandi a golfinu. Folk var jafnvel buid ad koma ser upp eldunaradstodu! Okkur var fylgt ut um allt thar sem vid attum ad kaupa lestarmida. Ad sjalfsogdu duttum vid, treyttu turistarnir, i tha gildru ad fylgja e-m yfir gotuna a dyra ferdaskrifstofu. Thar komumst vid ad thvi ad Indverjar, eins og fleiri, ferdast i sumarfriunum sinum. Thad voru allar lestar uppbokadar og vid neyddumst til ad panta okkur leigubil hja honum Anil sem var sko "government tourist officer", hvorki meira ne minna. Hann var svo indaell ad redda okkur vil fyrir litlar 8000 kronur. Thar letum vid aldeilis taka okkur i bossann.

Komumst loks til Agra eftir 4 tima ferd og rifrildi vid gamla tannlausa bilstjorann. Agra hefur upp a fatt ad bjoda annad en Taj Mahal. Thar er skitugt, folkid er fataekt og kyrnar ganga lausar eins og reyndar a flestum stodum. Vid komum okkur beint upp a hotel sem var adeins i 800 metra fjarlaegd fra Taj.
Daginn eftir voknudum vid upp ur 5 og vorum maettar i Taj Mahal klukkan 6 til ad sja solarupprasina. Thetta var otrulega fallegt, minna en vid bjuggumst vid, tho jafntilkomumikid.
Fra hotelveitingastadnum sast Taj Mahal en vid eyddum nokkrum stundum thar med vini okkar Flemming Geir. Hann kunni sko griska evrovisjonlagid "You're my lover, undercover", song thad med miklum tilthrifum og nokkrum danssporum ef vel la a honum.

Eftir tvaer naetur i Agra tokum vid rutu til Jaipur. Hun var kollud "gold liner deluxe", hofum sjaldan ferdast med thvilikum luxus.... Djok! Maetti lysa thessu sem heimagerdum alkassa a hjolum (vid hofum reyndar sed stad i Jaipur thar sem ruturnar eru gerdar, ekki traustvekjandi).
I Jaipur aetludum vid ad gera pinu gott vid okkur og voldum okkur hotel med sundlaug :D
Fyrsti dagurinn for i tan fyrir hadegi (Bjarma var ordin pinu despo). Eftir hadegi hentumst vid a lestarstodina ad tryggja okkur mida til Delhi. Her i Indlandi gerist allt a hrada snigilsins og thad tok um 40 minutur ad afgreida thessa tvo sem voru a undan okkur i rodinni, ad ogleymdum thessum gullmola sem ruddist fyrir framan okkur, their eiga vid thad sama vandamal ad strida og Kinverjarnir, litlu kruttin.

Fyrir utan lestarstodina hittum vid svo hinn myndarlega Indverja, Moin. Hann atti bara ad skutla okkur a naesta veitingastad en gerdi okkur svo gott tilbod ad vid hofum eytt sidustu tveim dogum med honum ad skoda helstu turistastadi Jaipur.

Fyrst for hann med okkur i Monkey Palace. Thar gengum vid tvaer upp haedina, afskaplega druslulega klaeddar midad vid indverskar konur. Aparnir voru okkur innan handar en einnig fjorir strakar sem toku upp a thvi ad elta okkur. Vid aetludum sko ekki ad lata tha stoppa okkur tho vid vaerum pinu hraeddar. Tokum svo u-beygju fra theirri akvordun thegar nakinn Indverji birtist okkur ofar i haedinni. Thetta var audvitad rosa fyndid fyrst, thangad til hann for ad elta okkur, med litla Indverjann uti. Tha matti sko sja undir iljarnar a islensku stelpunum og vid thutum aftur nidur, takandi myndir a milljon til ad syna ad vid hofdum allavega komid thangad. Gaman ad segja fra thvi ad nakti madurinn stoppadi a einum klettinum, setti annan fotinn upp, hendur a mjadmir og horfdi yfir borgina eins og konungur a medan hann ruggadi ser fram og aftur. Vid nadum ekki mynd af thessum, gerdum tho heidarlega tilraun.


Water Palace

I pinu sjokki forum vid a naesta stad. Thad var Vatnahollin sem var afdrep konungsfolksins i sumarhitanum i gamla daga. Thad var reyndar ekkert serstakt. Una Helga gerdist svo djorf ad skella ser a kamelbak. Hun sa fugla kroppa i hundagarnir a leidinni en best var thegar svona 50-70 manns hopudust ad gotunni sem hun for eftir og hropadi, veifadi og klappadi. Hana langadi mest ad taka prinsessuveifid til theirra en let thad tho eiga sig. Mjog fyndid samt sem adur.



Thar naest forum vid i textilverksmidju thar sem okkur voru syndar saumastofur fyrir baedi Monsoon og Habitat. Vid aetlum ekki ad borga uppsett verd fyrir Habitatpudaver her eftir... Keyptum okkur sari eins og sonnum turistum saemir. Endudum svo daginn heima med naanbraud og kok.



I dag vorum vid maettar ut a gotu klukkan 9 og bidum eftir Moin. Hann let ekki sja sig og vid toldum thad vera vegna thess ad vid gafum honum ekkert tips daginn adur, aetludum ad tipsa hann i dag. Med megasamviskubit forum vid thvi sjalfar ad Wind Palace, sem maetti eiginlega lysa sem gomlu kvennaburi. Thegar vid komum thadan ut gengum vid i fangid a Moin, gaman gaman. Tha hafdi hann verid adeins of seinn og elt okkur uppi thessa elska. Hann for med okkur i utsynisturn, city palace, observatory og ad lokum i e-t solarhof thar sem voru grafreitir furstanna og barna theirra. Allt saman mjog flott. Vid roltum adeins um adalmarkadsgotuna en hun var okkur ekki ad skapi. Um 15 vorum vid alveg bunar enda yfir 40 stiga hiti og vid forum heim. Rotudumst, Bjarma nadi varla ad klaeda sig eftir sundsprett og sofnadi med handklaedi utan um sig.

Planid her eftir er ad hanga a sundlaugarbakkanum med kok i annarri og bok i hinni. Ad kvoldi 6. mai munum vid svo renna i hlad i Delhi og hittum vonandi hinn helminginn af hopnum. Una Helga heldur heim 8. mai en hinar halda til Goa ad sleikja solina.

Takk fyrir okkur,
Una Helga og Bjarma.
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
11 athugasemdir

Mur, Mao og skitakuldi

29. apríl 2008 klukkan 07:40
Afsakid bloggleysi sidustu daga en nu verdur ur thvi baett.

I Hong Kong eins og adur sagdi einbeittum vid okkur einna helst ad verslun og odru i theim dur. Hong Kong statar ekki bara ad verslunum heldur eru margir skyjakljufar thar, otrulegt en satt. Vid forum a Victoria harbor, thar sem utsynid yfir hahysin a Hong Kong island er magnad, thar fer einnig fram staersta ljosasyning i heimi, sem vid saum ad sjalfsogdu.

Image and video hosting by TinyPic"

Eftir ruma viku dvol i heimsborginni Hong Kong,vorum vid komnar med nett nog af ljosaskiltum og jakkafatakinverjum og drifum okkur thvi til "alvoru kina", nanar tiltekid til Peking i skitakulda.

I Peking gistum vid a thessu lika fina hosteli med Asiubuum i miklum meirihluta, their maka eggjum framan i sig og thurrka naerbuxur i handthurrkunni, smekklegt. Kinverjar eru fint folk tho thad hraeki og aeli meira en vid eigum ad venjast, nu eru Olympiuleikarnir i nand og bindum vid vonir okkar vid ad fyrir thann tima verdi sem flestir farnir ad laera ad brosa og rydjast adeins minna  rodum.

Vid hofum tho gert adeins meira en throngsynar mannfraedirannsoknir a 1/7 af heimsbyggdinni sem einmitt byr i thessu landi. Thvi i Kina bua ekki bara Kinverjar heldur lika hann Arnar. En hann tok ad ser ad vera baedi tulkur og kennarinn okkar i Peking.

Arnar a einmitt heima i storglaesilegu husi i hjarta Peking med fallegu veggfodri og yndislegum vidbjods hurdaetandi hundi i gardinum sem hann ber samt enga abyrgd a.

Eitt af thvi fyrsta sem vid gerdum var ad sjalfsogdu ad berja godid augum, ef thid vitid ekki hver thad er tha er thad, likid af Mao formanni, en hann er geymdur i glaesilegu glerburi i husi a Torgi hins himneska fridar. Thad var mognud reynsla! skemmtilegast var samt rodin en vid og hinir sirka 1000 kinverjar sem einnig vildu sja Mao gaeja vorum barin afram ekkert hangs, Bjarma fekk lika ad kenna a thvi, madur grinast ekki i hermonnum althydulydveldisins.

Svo var farid i forbodnu borgina sem var hreint ut sagt storglaesileg, vid gerdum svo ekki mikid annad en ad gleypa frjokorn thad sem eftir leid dagsins.

Mesta tholraun ferdarinnar hingad til var an efa thegar Una og Tota aetludu i sakleysi sinu ad kaupa ser sitthvora Dell tolvuna, en i stuttu mali thegar vid loksins fundum verslum sem gat selt vorurnar sem thau voru med a bostolnum tok thad svona 5 tima.

Einn daginn skelltum vid okkur oll a silkimarkadinn, thar eru solumennirnir eins pirrandi og their gerast en tha er fint ad hafa alika pirrandi kaupanda med i for. En Arnar greyid fekk ad prutta fyrir okkur hina ymsu hluti og haga ser eins og faviti solukonunum til mis mikillar gledi, vid unnum alltaf. Una og Bjarma hafa samt eitt talscert meiri tima a silkimarkadnum en vid hinar thvi thaer foru til klaedskera og letu sauma a sig thessa finu kjola sem var tho engin dans a rosum en allt er gott sem endar vel.

24.april Vard Tota litla 21 ars, thvi var fagnad med Peking ond a snilldarveitingastad sem er fraegur fyrir ad rada bara dverga sem dyraverdi, thad gerir matmalstimann svo miklu miklu skemmtilegri. Um morguninn fekk hun serbakada afmaelistertu ur kinverskubakarii, sem reyndist svo eftir miklar efasemdir vera naestum thvi jafn god og hun var flott.

Image and video hosting by TinyPic
AmmoTota med flotu bakariiskoronuna!


Vid forum lika i dyraardinn i Peking thar eru Pondur sem eru svo mikil krutt. Mjog serstakur gardur, beint yfir bjarnagryfjunni liggur einmitt nyja lestarlinan,og thar er adal sportid ad henda mat og hella djus ofan i ginid a thessum greyjum.

Image and video hosting by TinyPic
Litla saeta panda



I gaer for Arnar med okkur a Kinamurinn sem var snilld. Eftir 3 tima akstur i hinni frabaeru Peking umferd komum vid ad murnum og thar tok vid upp og nidur troppur ganga i 3 og halfan tima. Thratt fyrir talsvert mikid erfidi var thetta otrulega skemmtilegt, enda eitt magnadasta mannvirki i heimi.

Image and video hosting by TinyPic
Murinn
Image and video hosting by TinyPic
Einn af vardturnunum morgu sem vid forum i gegnum

I dag skiljast svo leidir, en Una og Bjarma halda i hitann a Indlandi og vid hinar verdum eftir i Kina fram til 3.mai. Thad er ovist hvad vid brollum thessa daga sem vid eigum eftir i Kina en orugglega eitthvad svaka toff.

Vid kvedjum ad sinni

ps.Thad eru einhverjar myndir komnar inn og fleiri a leidinni.
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
8 athugasemdir

Myndablogggg!!! wannabeee

15. apríl 2008 klukkan 14:19
  Jaeja,elsku felagar!!!
Er ordin sma pirri pu a slakri tolvukunnattu minni en tetta atti upphaflega ad vera massa myndablogg en eina sem tid faid er venjulegt blogg og kannski 2 myndir ef mer tekst vel!!!
 Seinast tegar vid bloggudum vorum vid a leidiinni aftur til Bangkok eftir Chiang Mai. Tokum naeturlest, 14 tima, sem var ekki allveg eins ljuf og hin en gluggarnir voru opnir og greyid anna sem svaf nidri og gat ekkert lokad sinum vaknad vel skitug i framan eftir 14 tima!!! 
 En vid forum beint a Lub d Bangkok ( sem tydir sofdu rott) yndislega hostelid okkar!
Dagarnir i Bangkok foru mest megnis i chill! Horfdum a Gossipgirl, versludum, skodudum Grand Palace sem var lokad akkurat daginn sem vid komum, e-r buddadagur og bara taelendingum hleypt inn. Frekar fult!
En svo hittum vid Pottru, stulkan var a heimaslodum sem var gott fyirr okkur. Vid kiktum a lifid og forum i vatnsrennibrauta-taekja gard. Mjog gaman. Fengum lika ad fara heim til fraenku hennar sem er dulla eins og allir taelendingar og var gaman ad sja ekta taelenskt heimili.
Svo komu Iris, Gudjon og Jonsi a fostudeginum og gafst okkur sma timi ad catch up en tau hofdu verid i Hong Kong og keypt tolvur og annad slikt sem planid er hja okkur.


A laugardeginum forum vid til Hong Kong:) 
Lentum a eyjunnni, sma sjokkeradar yfir allri menguninni sem var tarna.Tetta var svo toka en tratt fyrir tad er rosaleg mengun herna. 
Hong Kong buar eru snillingar og vilja allir bua a sama stad. Tar sem Hong Kong er ekki stor ad yfirbordsflatarmali ad ta leita teir upp og ekkert litid. Skyjaklufarnir og blokkir gnaefa her yfir og faer madur hroll vid ad sja tetta. Myndi amk ekki vilja bua i svona blokk a 112u haed og hugsandi ad konan a 90u haed gaeti sofnad yfir eldavelinni.

Hostelid okkar, Hong Kong Hostel er gasalega flott!!! Nottin er dyrari en allt sem vid hofum adur gist og sko vid erum ekki ad borga fyirr gaedin. Fyrstu nottina var okkur trodid inn i pinkuherbergi med 4 rumum og laum tar i kremju fimm stelpur. 
 Naesta dag fengum vid to annad herbergi svo tetta er allt i godu nuna fyrir utan dynurnar sem oskra a nottinni tegar madur hreyfir sig og eru hardari en golfid. 

Dagarnir i Hong Kong eru bunir ad fara i moll og budir, Anna er buin ad kaupa ser Mac tolvu, Tota og Asta ipoda og Bjarma myndavel. Svo okkur aetti ekki ad skorta neitt! En Tota og Una stefna a tolvukaup i Peking.

I dag, ja sko today was the day!!! En ta forum vid i Disney land. Tad var aedi. Vid hlupum inn innganginn, fundum kort af placeinu og tokum tetta sko skipulega enda ekki ad missa af neinu.
 Tetta var snilldar dagur, Una sem var i Essinu sinu fekk ad knusa Mikka og vid tokum myndir af okkur med ollum figurum.
Svo forum vid a trjar syningar a fyrstu vorum vid med gaesahus allan timann en tetta var svo flott. Hin syningin var i 3D sem var GEDVEIKT!!! Aladin kastadi til okkar gimsteinum sem vid gripum og kertastjakinn i Fridu og Dyrinu opnadi kampavinsfloskur svo ad kampavinid skvettist a okkur ( i alvorunnni)) og andres ond flaug yfir salinn, svo toku allir gleraugun af og heyrdu var ekki gaurinn tarna i veggnum!!! Magnad!!!  Tessir Kinverjar eru snillingar.

Erum nuna a 100 manna netcafe med bara gaurum sem eru allir i tolvuleikjum, og med hliodid a tannig ad tetta er eins og ad vera a battlefield herna.. skotaras og oskur!!! 

Hong Kong er snilldar borg. Manni lidur eins og madur se a  Times square... auglysingaskilti i ollum haedum svo madur missi ekki af neinu:)

Jaeja nu ongum vid af reykingarlykt !!!
Farnar heim i palace-id 

Kvedja.
 Team Iceland

Image and video hosting by TinyPic




 eg kom inn tveim mydum, her er seinni to hun eigi voda litid heima herna



Tetta eru edlurnar i loftinu sem voru alstadar i Thailandi, gaman ad hafa taer fyrir ofan mann en taer skitu i matinn manns og harid:)
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
19 athugasemdir

Angkor What?

06. apríl 2008 klukkan 11:37
Godan dag godir halsar!

Nu erum vid staddar i borginni Chiang Mai i nordurhluta Thailands, hun er frabaer. Her er himininn blar og betlararnir hafa baedi hendur og faetur, sem er aedi.

Margt hefur a daga okkar drifid fra sidustu faerslu en tha vorum vid staddar i midur fagurri hofudborg Kambodiu, Phnom Penh, i steikjandi hita og mollu. Thratt fyrir dapurlega asjonu, hefur Phnom Penh upp a ymislegt ad bjoda, vid akvadum ad sja sem mest a einum heitum degi.

Litill minivan sotti okkur um morguninn asamt nokkrum fokkfeisum, "parid, astralski gaejinn og ameriska hambogellan", thad spillti ekki fyrir. Vid skodudum konungshollina sem er eingin smasmid, eg held tho ad vidbrogd okkar vid einstakri byggingunni hafi ekki verid naerri eins afgerandi og vidbrogd heimamanna vid klaedaburdi okkar fronarbua. En iklaeddar stuttbuxum og hlyrabolum maettum vid glaerar ad innganginum og fengum tha vorkunnar augnarrad fra flestum vidstoddum og endadi a thvi ad vid neyddumst til ad klaedast einstaklega ljotum glaerum stuttermabolum og yfirglydrurnar Anna og Una fengum thessi lika forljotu pils til ad vefja um okkur, allt i theim tilgangi ad vernda blygdunarkennd heimamanna.

National museum hefur ad geyma staersta safn khmerlistaverka i heiminum, lonely planet heldur ekki vatni yfir thessu en vid vorum ekki alveg ad sja storfengleikan i thessum handa og hofudlausu styttum. Loftkaelingin var hinsvegar kaerkominn og voktu flugfiskarnir i tjorninni langt um meiri hrifningu en listin sem safnid geymir.

Tveir markadir voru heimsottir, alltaf gaman ad thvi, reyndar er thad heldur takmarkad hversu lengi madur heldur lifi inni i theim thar sem rakastigid minnir einnaheslst a Laugardalslaugina.


Thad sem vid hofdum mestan ahuga a ad skoda voru Killing fields og The Genocidal Museum, Toul Sleng.
En eins og flestum er kunnugt um attu ser stad hrikaleg thjodarmord fyrir rett um 30 arum i Kambodiu. Eftir mikla politiska upplausn i landinu nadu voldum kommunisk ofl sem kolludu sig Raudu Khmerarnir med illmennid Pol Pot i broddi fylkingar. Vid valdatokuna fyrirskipadi hann ad nu vaeri arid 0 runnid upp, baekur voru brenndar, hof jofnud vid jordu asamt thvi ad ometanlega menningarverdmaeti voru eydilogd. Thjodin atti ser ekki lengur sogu. Thaer tvaer milljonir manna sem bjuggu i hofudborginni voru reknar 14 km fra hofudborginni til Cheung ek, sem fljotlega hlaut nafnid Killing fields af augljosum astaedum thegar folk tok ad deyja i hrinum. thar var theim gert ad vinna 18 stunda vinnudag a hrisgrjonaokrunum, hverjum og einum var uthlutad 180 gr af hrisgrjonum annan hvern dag og ef einstaklingur vard uppvis ad thvi ad leggja ser til muns umfram thad sem hann fekk var sa hinn sami drepinn samstundis. Thad var mjog atakalegt ad heimsaekja killig fiels en thar er ad finna fjoldagrafirnar sem fundust 1980, thegar fyrstu sannanir fyrir vodaverkum Pol Pots birtust umheiminum og voru thar grafnar upp leyfar af 9000 thusund manns sem teknir hofdu verid af lifi, fyrir thaer sakir ad thykja oaeskilegir og ogna rikjandi skipulagi. 9000 hauskupum hefur verid komid fyrir i Cheung ek, og enn liggja fot og bein fornarlambana a strjali auk thess sem holur eftir gjoldagrafirnar eru vida.


Ef heimsoknin i Cheung Ek var ekki nogu nidurdrepandi tha dugdi The Genocidal museum, Toul Sleng alveg. En thar hefur fangelsi verid breytt i safn med myndum af fornarlombunum sem thar var haldid, allt fra kornabornum og upp ur. Thar eru klefarnir flestir i upprunalegri mynd og ohugnadurinn sem thar for fram leynir ser ekki.

Motto Pol Pots var ad "Ad halda ther er engin grodi, ad drepa thig er ekkert tap" Med thad i farteskinulet pol Pot drepa thusundir borgara. Alls benda nyjustu rannsoknir til thess ad um 2 milljonir manna hafi latist i stjornar tid Raudu Khmeranna, sem var tha thridjungur thjodarinnar.

Nu er framtidin bjartari i Kambodiu, en loksins eru ibuar thessa fataeka lands ad upplifa fridartima i araradir og er uppbyggingin komin a nokkud gott skrid virdist vera.

Thetta er tho an efa lang fataekasta landid i ferdinni, her er ekkert felagslegt kerfi og eiga margir engra annara kosta vol en ad betla, sem oft a tidum getur verid yfirthyrmandi, en fornarlomb jardsprengja eru hvad mest synileg.

Eftir merkilega dvol i hofudborginni var forinni heitid nordur i land til Siem Riep, thar sem markmidi var ad berja augum eitt af sjo undrum veraldar, Angkor Wat. Angkor Wat er staersta truarlega byggingin i heiminum auk thess sem ad fjoldi annarra hofa standa i grenndinni. Vid rifum okkur upp eldsnemma um morguninn, til ad sja solarupprasina vid Angkor, vid hofdum leigt okkur Tuk Tuk bilstjora sem redi ser ekki fyrir kaeti enda ekki fengid vinnu i langan tima. Olysanleg sjon, og hofin hverju odru magnadri. Sumir skelltu ser i fjallgongu upp hofin og lentu i sjalfheldu. Thad var svo einstaklega fyndid ad horfa a domurnar vaela ur hraedslu vid ad skrida nidur hrottalega brattar troppurnar, sem ekki eru smidadar fyrir skostaerdir 36 og upp ur.
Daginn efttir kom ad thvi ad finna ut ur thvi hvernig besta vaeri ad komast fra Kambodiu til thailands, ruturnar heilludu enga okkar enda ganga ruturnar her undir nafninu "Scam bus" thar sem itrekad er svindlad a farthegum, ser i lagi theim med ljost, vestraent yfirbragd. Hostelgaejinn var odur i ad senda okkur med leigubil. Vid vorum ekki alveg ad gleypa vid thvi hvernig vid aettum ad komast fyrir 4 aftur i, en hann sagdi ad billinn vaeri buinn til fyrir fjorar manneskjur aftur i. I stuttu mal var billin bara 5 manna eins og vid heldum fram. Thad er alveg greinilegt ad Asiubuar hafa taslvert adra skilgreiningu a plassi en vid, enda flestir bunir til ur fuglabeinum. Thetta hafdist tho og eftir thriggja tima akstur komum vid ad landamaerunum, thadan tokum vid svo minibus til Bangkok, og tokum 14 tima naeturlest til hinnar yndislegu Chiang Mai.


Her er gott ad vera, og hefur borgin hreinleikablae sem sjaldsedur er i Asiu. Vid byrjudum a ad gista a hosteli i finuhverfi rett fyrir utan midbaeinn, en thotti thad ekki nogu nalaegt ollu aksjoninu thannig ad vid faerdum okkur a hid geysivinsaela og flotta S.K House, flestum til mikillar gledi. Vid gerdum heidarelega tilraun til ad kikja ut a lifid, i fyrstu leist okkur ekki a blikuna, en flestir af theim fjolmorgu borum sem borgin hefur ad geyma innuheldu gamla ogedis hvita karla i sleik vid taelenskar unglings stulkur. Med aeluna i halsinum gafumst vid ekki upp og ad endingu fundum vid eina fulla barinn i baenum, thar voru bara thailendingar nema vid og Irarnir sem vid drogum med okkur. Endadi sem sagt vel, thratt fyrir ad hneyklsunin se enn til stadar a litlum parti mannkynsins.


I dag tokum vid svo turistan a thetta, vorum sottar snemma i morgun og keyrdum ut fyrir borgina til ad sja filana. Fyrst saum vid syningu thar sem filagreyin syndu okkur listir sinar. Thvi naest var haldid a filabak, Bjarma fekk ad vera ein med gaedinum okkar. Filar eru storskemmtileg dyr, thessir kunnu lika ad dansa og sparka i fotbolta, allt mjog edlilegt. Tota sjalfbodalidi gerdist svo fraeg ad lata fil tramba a rassinum  a ser. Eftir filana sigldum vid a bambusfleka nidur a, thar voru litil born ad selja armbond "only 5 bhat", ja hvergi fridur. Ad endingu forum vid i apa skolann, saum stutta syningu, allt voda kruttlegt, gafum theim banana af thvi their voru svo saetir. Einn var alveg brjaldur.

A morgun er svo forinni heitid til Bangkok, getum ekki bedid eftir unads morgunverd a Lubinu, bersta hosteli i heimi. Thar aetlum vid ad versla og skoda i nokkra daga thangad til vid fljugum loks til Hong Kong 12. april.


Vid kvedjum ad sinni, enn og aftur hvetjum alla til ad kommenta, alltaf gaman ad vita hverjir eru ad njosna um okkur! Tho nokkud er komind inn af myndum fra Kambo og Thai, og eru fleiri myndir vaentanlegar thegar vid komumst i betra net.
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
18 athugasemdir

Time flies when you're having a good time!!

29. mars 2008 klukkan 12:55
 Margt og mikid hefur a daga okkar drifid sidan sidast var bloggad. Vid lentum I Bangkok ad kvoldi 22.mars eftir ansi fint videokvold tvi flugvelin baud uppa margar af nyutkomnum meistarastykkjum.Um leid og vid lentum  tok a moti okkur mikill hiti og raki, enda 29gradur og klukkan rett fyrir midnaetti. Vid domur forum beint I tad ad redda okkur leigubilum a hostelid. Bilferdin var ansi skrautleg, eftir klukkutima ferdalag med miklum samskiptaerfidleikum komumst vid ad lokum a yndislega hostelid Lub’d Bangkok. Hostelid er an efa tad besta sem vid hofum kynnst, mjog snyrtilegt, med aedislegum badherbergjum, mega godri loftkaelingu og gourmet morgunmat, ekki ma gleyma mjog svo hjalplegu starfsfolkinu, hostelid faer 10 I einkunn!  

Vid gistum tvaer naetur I Bangkok sem thyddi ad vid hofdum einn heilan dag fyrir naesta ferdalag. Hann nyttum vid i ad fara a JJ market, sem er staersti og thekktasti markadurinn i Bangkok. Vid versludum ekkert svo mikid thar sem hitinn var gigantiskur og svitinn I alvorunni draup af nefinu a okkur. Ekki beint gedslegt.
En finn markadur tratt fyrir tad og hefdi verid haegt ad gera god kaup ef bakpokinn vaeri ekki fullur.
 Eftir markadinn brunudum vid med skytrain um allt og stoppudum adeins i risa molli rett hja thar, voru verslanir a bord vid Mango og Levis, allt miklu odyrara gaman gaman!!  Ut um allt i mollinu voru bioauglysingar og vid stollurnar akvadum ad skella okkur a hina margfraegu mynd Step Up 2 en thad reyndist thrautinni thingri, eftir leidbeiningar fra 4 innfaeddum og mikid labb og svita fundum vid ekki thetta blessada bio og gafumst thvi upp, leidin la thvi beint heim i sturtu og svefn.

Morguninn eftir tokum vid allt okkar hafurtask og drifum okkur ut a rutustod. Thar keyptum vid oikkur mida til Trad, en thadan er siglt til Koh Chang. Rutuferdin kostadi okkur heilar 200 kronur:). Hun var ekki beint i somu gaedum og Vestfjardarleidir myndu bjóda uppa.  I hana var folki smalad thar til saetin fylltust og rumlega thad, fullt af illalyktandi folki stod i tessari 7 tima rutuferd. Allir voda gladir med tad, nema sveittu islendingarnir.

Fra Trad tokum vid bat eda ryddall til Koh Chang sem er aedisleg eyja rett vid vesturstrondina. Medan bedid var eftir ad fleygid leggdi ur hofn reytti Bjarma af ser brandarana og komumst vid medal annars ad thvi ad hun er bara buin ad vera med taer i 17 ar. Tegar vid vorum komnar a eyjuna var okkur hent uppi i TAXA eda super size tuktuk einsog vid viljum kalla thad og brunad med okkur beint a Bailan Familiy Resort. Allt leit voda vel ut, tilhugsunin ad gista i bungalow var spennandi en tegar a holminn var komid og vid opnudum kofan toku a moti okkur poddur af ollum staerdum og gerdum m.a. edlur og kakkalakkar. Thegar vid vorum ordnar hasar af gelgjuoskrum og bunar ad jafna okkur a podduflodinu hittum vid Sif og Dagbjortu og atum med theim dyrindis thaimat, seigar nudlur. Pjattrofurnar Anna og Asta letu tvaer naetur i thessum hraedilegu vistarverum duga og fluttu sig i nyja bungalow med air con og sundlaug. Hinar sem sleiktu buddurnar voru eftir asamt hinum alraemdu koh chnag moskitoflugunum, en voru tho tidir gestir i VIP bungalow tvibbana. I Koh Chang leigdum vid okkur 4 Vespur og teyttust um a teim a milli stada. vid skodum foss med skitugu vatni og Bjarma datt a einn thaelending, i alvoru. Vid skelltum okkur ad sjalfsogdu i thailenskt nudd. Buddusleikarnir, Tota, Bjarma og Una, gerdu vel vid sig og foru a bestu nuddstofu baejarins i 90 minutna full body massage, a medan air con gellurnar, Anna, Asta, Sif og Dagbjort, foru bara i 30 minutna baknudd inni midri minjagripaverslu, frekar spes. 



 I stuttu mali var tetta frabaert fri, finar strendur, heitur sjor og vid vorum bitnar i drasl, flestar med yfir 50 bit a likamanum..... Bara gaman :) Svo var skemmtanalifid tarna lika gott en heimamenn kenndu okkur ad drekka vodka ur fotum svo ad gledin vard enn meiri, dont try this at home;) 

Naest var stefnan tekin a Cambodiu, tokum vid ferju og rutu ad landamaerunum. Tegar tangad var komid tok a moti okkur fullt af folki sem baudst til ad hjalpa okkur, vid tadum tad med bros a vor og glaera kolla tvi tegar visad var komid i hendurnar ta rukkudu adstodarmennirnir okkur um mord fjar, sameiginlegi sjodurinn klaradist!  
Thvi naest var okkur ekid ad naesta bae thar sem vid thurftum thvi midur ad eyda einni nottu. Vid erum allar sammala um thad ad thessi baer var einn sa eymdarlegasti i bransanum, timunum var mest eytt i ad hugsa um aedislega poddulausa Island. 

Nuna erum vid komnar til hinnar yndislegu borgar Phnom Penh, hun selur is og nammi vuhu! Rutuferdin hingad var ad Asiskum sid ekkert serlega thaegileg, serstaklega fyrir greyid Totu sem sat a plastkolli alla leidina. Thegar rutuferdin loksins tok enda vorum vid naestum etnar af litlum tuktuk bilstjorum en a endanum komumst vid heilar a holdnu a gistiheimilid okkar. A morgun skodum vid allt thad merkilega sem her er ad sja 
thangad til naest baejo!!

ps. ef vid faum ekki fleiri komment tha forum vid i blogg verkfall.
     myndir koma thegar netid verdur betra.






 

Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
16 athugasemdir

Kvedja ur rakanum herna hinum megin...

21. mars 2008 klukkan 14:02
Heil og sael kaeru landsmenn.
I Astraliu lidur timinn hradar en i Evropu. Erum nykomnar en forum a morgun. Ja, a morgun forum vid til Thailands, en nog um thad sidar.
Eftir Byron Bay forum vid i rutuferd. Hun var ekki nema 25 timar, hversu marga hringi kaemist madur a Islandi?... Ad henni lokinni stodum vid upp a rutustodinni i Airlie Beach skakkar, med viskirodd og sumir bunir ad poppa of mikid af bilapillum...
Airlie Beach er tengilinn vid Whitsunday eyjarnar og thar er vaegast sagt heitt. Vid gistum a thessu fina hosteli eina nott, gerdum fatt litid, kiktum adeins i budir og girudum okkur upp af brimbrettagelluklaednadi, madur ma ekki missa kulid a siglingu med Astrolunum...
Siglingin hofst med  sma skurum sem svo agerdust i tveggja daga hellidembu. Vid brunudum beint ut i South Molle Island thar sem var gist i frabaerum herbergjum med serinngangi og verond. Ad haetti ungra ferdalanga var setid ad sumbli um kvoldid undir palmatrjanum.
Annar dagurinn hofst snemma, beikon og egg kl. 6 adur en lagt var i hann. Vid sigldum ut i Whitsunday Island thar sem Whitehaven strondin er. Hun er vist ein af tiu bestu strondum heims (thid getid googlad thad sjalf), en hun tok ekki svo vel a moti okkur med kulda og rigningu. Sem betur fer vorum vid med stinger suit sem gat haldid a okkur hita thennan tima. Naesti afangastadur var svo koralrifid, eda The Great Barrier Reaf. Thar var snorklad, sumum thotti thad aedi en sumir toku adeins of inn a sig hakarlatal sidustu vikna og drifu sig upp ur vid fyrsta taekifaeri. Eftir thad var haldid heim a eyju og vid tok endurtekning a fyrra kvoldinu hja sumum en Team Iceland var sofnad um 21.
Naesta morgun var sko sofid ut, alveg til 7. Tha var lagt i hann og farid a annan stad til ad snorkla. Thar saum vid fleiri fiska en adur og meiri sol lika. Vid vorum svo komnar aftur til Airlie um 14.
Naesti dagur for i adra unadsrutuferd, hun var tho ekki nema 10 timar! Um kvoldmat vorum vid komnar til Cairns, thar eru sukkuladistykki geymd i isskap og folkid er vaegast sagt omyndarlegt, e-s konar frumbyggjabragur a flestum a McDonald's verdum vid ad segja..
I dag, fostudaginn langa eda good Friday var allt lokad. Thvi heldum vid okkur vid frabaeru sundlaugina okkar og unnum i taninu. Vid gistum a Gilligan's backpacker's hotel and resort, thad er aedi og allt til alls, kannski bara ekki i dag...
A morgun er ferdinni svo heitid, eins og adur var sagt, til Thailands svo vid latum vita af okkur naest thar!!
Erum flestar akvednar i ad koma aftur hingad enda mun meira ad sja heldur en madur kemst yfir a 2 vikum.

Oy, good bye mate!
Kv. Vid

E.s. Thorhildur Vala Thorgilsdottir er komin med 58 kt demanta i eyrun og rubinafidrildi i naflann.
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
5 athugasemdir

Aussie, Aussie, Aussie

14. mars 2008 klukkan 06:38
Nu erum vid gengid komnar til fyrirheitnalandsins, her er baedi kul ad stytta ord og vera brunn. En thar sem hudkrabbamein lekur vist af hverju strai her i landi er solarvornin okkar besti vinur.

Ferdalagid hofst med fjogurra tima flugi fra Auckland til Sydney. I Sydney tok Silja a moti okkur og leiddi okkur ad "hollinni" sem Silja er buin ad bua i Sidustu manudina. Hollin er glaesilegt hostel i hjarta Sydney, thar voru thrifstandardarnir a talsvert odru stigi en thad sem modir okkur kenndi okkur i aesku og allt kroggt af kakkalokkum Bjormu til mikillar gledi. Thad heyrdust nokkur omensk op fra henni thegar hun vaknadi upp vid ad litill gaeji var ad skrida i ruminu hennar, frekar skondid.

I Sydney eyddum vid 5 dogum og var ymislegt brallad a theim tima. Fyrsta daginn gerdum vid ekki mikid annad en ad venjast adstaedum, sumir attu erfidara med thad en adrir. Vid frettum svo ad Sif og Dagbjort vaeru einnig i baenum, thvilik tilviljun, og eyddum vid med theim stollum kvoldinu, kiktum a Scruffy Murpheys sem er an efa heitasti stadurinn her i borg. Iris og co komu einnig og skemmtu almuganum a medan Steinunn og rest voru bara treyttar.

A degi tvo vard svo draumur margra ad veruleika en tha bordum vid hid fraega Operuhus augum, ekki omerkileg smid, og ekki spillti frabaert vedrid fyrir ne heldur kinverjarnir sem voru ad gifta sig beint fyrir framan thad, tokum turistan a thetta og forum ad njosna um aumingjans folkid.

Image and video hosting by TinyPic

Longum stundum var eitt i sundlaugargardinum sem var i grenndinni og Foru Bjarma og Tota i siglingu ut ad Manly strondinni, hinar voru bara latar a medan. A medan gerdi Una ser litid fyrir og skellti ser i myndatoku med Silju, mjog flokin saga a bak vid tha myndatoku, en utkoman var orugglega mjog flott, verst ad vid fengum ekki ad sja hana thar sem myndirnar sjalfar fylgdu ekki med og kostadi stykkid heilar 12000, thannig ad ef einhver gefur sig fram i ad fjarfesta i eins og einni mynd af Unu tha yrdi thad vel thegid. Vid tokum nu samt nokkrar myndir af theim domum, enda litu thaer ut eins og supermodel eftir a okkur hinum til omaeldrar gledi.

Image and video hosting by TinyPic"

Naeturlifid var ekki thad besta, en thad batnadi til muna thegar vid saum ad einn barinn var med Icelander a bodstolnum, risa kanna af blaumdrykk voda fint.

Sidasta daginn okkar i Sydney forum vid i gongutur fra Coogee ad Bondi strondinni, thad var mjog indaelt i solinni nema kannski fyrir Bjormu. En ef thid vitid ekki hvernig hun litur ut tha thekkist hun einna helsta af rakettunni sem stendur ur rassinum a henni. Thessi aedibunugangur kom samt nidur a henni thegar henni thotti vid hinar eitthvad seinar a gangi og aetladi ad thjota framur okkur en rak tanna svo hrottalega i annad eins hefur ekki sest i araradir. Hun er samt buin ad jafna sig stelpan.

A medan a ollu thessu stod vorum vid ad velta fyrir okkur hvernig restinni af ferdinni yrdi hattad. En fyrir ykkur sem ekki vita er Astralia alveg feikistort meginland. Vid akvadum tho ad kaupa rutupassa sem gefur okkur kost a ad komast upp alla Austurstrondina og hoppa i og ur thar sem okkur synist. Virtist einfold hugmynd i byrjun, adur en vid forum almennilega ad paela i timanum sem vid hofdum og vegalengdinni, tha foru lestar skyndilega ad hljoma voda vel. Vid heldum okkur tho vid rutupassan, sem kom okkur hingad til hins marg romada Byron bay, og tok thad litlar 13 klukkustundir i rutu og er ekki nema taeplega 1/4 af heildarvegalengdinni til Cairns.

Byron bay er bara snilldar baer ut i gegn, en thetta er vist gamall hippabaer, thad thurfti samt engin ad segja okkur thad thar sem thad finnst mjog greinilega a lyktinni, ef thid skiljid hvad eg a vid. Ef lyktin er ekki naeg sonnun tha aettu gomlu, utreyktu dreddakallarnir med ennisbond sem syna a ser trynid thegar dimma tekur ad duga.

Hostelid sem vid erum a er mjog fint, folkid sem byr thar er saenskst og ef thad er ekki saenskt tha litur thad ut fyrir thad eda er fra israel. Thad eru nu samt tveir danskir gaejar med okkur i dormi sem aettu skilid heila bloggfaerslu, en eg laet nokkrar setningar naegja.

Their fyrst og fremst klaedast eins naerbuxum, throngum, bleikum og raudum, ja hvernig vitum vid thad? eda ollu heldur hvernig veit allt hostelid thad?
Astaedan er einfaldlega su ad thetta eru athyglissjukustu og asnalegustu gaejar sem vid nokkurntiman hofum sed. Annar theirra er eins og risi a sterum, hann kann samt ad tala og eydir klukkutima i ad velja bolinn fyrir djammid okkur til mikillar gledi, en ma eiga thad ad ljotara safn af bolum er eflaust vandfundid, blai "wifebeaterinn" var samt bestur, a medan stod minni og sleiktari utgafan af sjalfumglada dananum og matadi halsmen enda mikilvaegt ad thad se i lagi. Verst ad vid nadum engum myndum af theim, their hefdu samt an efa verid til i ad sitja fyrir, madur vill bara ekki gefa svona folki of mikid egobust.

Strondin her i Byron er gedveik, sjorinn er thad lika i eins bokstaflegri merkingu og hugsast getur, en vid latum thad ekki stoppa okkur. Vid saum thad i hendi okkar ad til Astraliu gaeti madur omogulega farid odruvisi en ad skella ser a brimbretti. Sa draumur vard ad veruleika i dag. Vid vorum sottar rett fyrir 9 i morgun asamt fullt af saenskum pium. Vid skulum orda thad thannig ad folk var misoflugt. Bjarma stod sig eins og hetja enda klikkud, Una og Tota gatu stadid, Anna og Asta gatu thad hins vegar takmarkad. Kennurunum eflaust til mikillar lukku. Jafnvaegi hefur bara aldrei verid okkar svid. Thetta var samt mjog skemmtilegt, sjorinn er svo sjukt skemmtilegur herna, vid heyrdum thad reyndar i dag ad hakarlafaraldur se her a slodum, Una er serstaklega satt med thad enda hennar heitasti draumur ad skora a einn i einvigi, vid sjaum tho hvad setur.

I fyrramalid hefst svo 25 tima rutuferdin til Whitsunday eyjanna thar sem vid eigum bokada luxus 3 daga siglingu um eyjarnar, og munum gista a einni theirra a einhverju luxus hosteli. Thar verdur snorklad um koralrifid mikla, synt og legid i solbadi, ekki slaemt.

Bless i bili og vid hittumst heil ;)
Anna, Asta, Bjarma, Una og Tota

ps komnar inn fullt af myndum flickr.com/photos/kindinerheima
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
12 athugasemdir

Good bye New Zealand

06. mars 2008 klukkan 08:57
Good dag good dag.....

Nu aetlum vid ad klara Nyja Sjaland i tessu bloggi, tar sem ad a morgun er forinni heitid til Astraliu, lands brimbrettagaejanna....jiiiiiiii tad vottar fyrir hlokkun i okkur :)
 Svo vid tokum tetta i rettri rod ta kemur sagan oll herna.
Eftir Wellingtondjammid, heldum vid eda aetludum til Waitomo Caves, ad skoda orma sem lysa i myrkri i hellunum sinum.... spes! Vid maettum a stadinn med enga gistingu og hugafar okkar islendinga ad tetta reddist. Tad gerdi tad ekki. Vid keyrdum i orvaentingu a  milli hostela og var visad hvad eftir annad a dyr. Tarna var klukkan ordin sjo og recepcion lokar oftast 8 a hostelum. Ta akvadum vid slaufa ormaskoduninni og bruna alla leid til Hamilton. Tar fundum vid tetta finasta hotel sem vildi hysa okkur:)  Gistingin var heldur dyr svo vid gistum bara tvaer naetur, enda prinsessur a ferd.
 Hofum ekki mikid um hamilton ad segja, lobbudum um i rigningunni, forum a 27 dresses og nutum tess ad liggja i taegilegu rumunum.
 Naesti vidkomustadur var Bay of Islands nanar tiltekid Paihia. Tessi solrikistadur tok heldur betur vel a moti okkur med rigningunni sem virdist vera okkar fylgja i tessari ferd.
Af tilviljun lobbudum vid a Steinunni, Soru og Toru og tok vid gledi gledi gledi.
Daginn eftir voknudum vid seint og um sidir, forum i hadegismat med stelpunum og tokum svo tennan agaeta gongutur um frumskoga og mangrove skoga. Turinn atti ad enda hja Haruru falls en stigurinn var lokadur svo vid lobbudum alls 10 km a flipflops. Greyid Asta missti eina ta sokum ofvirkni Bjormu.
 Eftir tetta voru allir daudtreyttir og foru snemma i hattinn.
Daginn eftir var sko THE DAY OF TAN!!!! Solin braust fram ur skyjunum, okkur til mikillar gledi. VId tutum med handklaedin og baekurnar a strondina, allir med solarvorn nema Bjarma.
Eftir tan session og kajakrodur voru flestir ordnir godir a sol en nema tveir i hopnum. Bjarma akvad ad taka tetta skrefin lengra og steikja ysta lag hudfrumnanna med enga solarvorn tratt fyrir itrekadar advaranir fra vinkonum sinum sem halda solarvarnarframleidendum uppi med allri neyslu sinni, lika tegar tad er skyjad!

Um kvoldid saum vid afrakstur dagsins og grilludum.!!! Tad var BBQ i lagi!
Spiludum svo Monopoly langt fram a kvold sem Una RUSTADI!!! aldrei tessu vant forum vid snemma i hattinn.

Nu erum vid i Auckland a internetcafe, segir sig sjalft:) a medan gelllurnar eru a P.S I love you.
A morgun fljugum vid til Sydney tar sem Silja tekur a moti okkur. :) Hlokkum til ad sja nytt land!

Naesta blogg verdur liklega fra Byron Bay.
Stay tuned.
Kv. Bjarma og Una

P.S. Settum inn tonn af nyjum myndum svo saekid poppid og tillid ykkur fyrir framan tolvuna:)


Ein herna af okkur ollum saman, bara ad minna ykkur a fallhlifarstokkid!!!:)
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
15 athugasemdir

Fallhlifarstokk!

01. mars 2008 klukkan 09:21
Afsakid maedur fyrir sambandsleysi sem var augljoslega ad fara med ykkur!

Annars verdur ad segjast ad margt hafi a daga okkar drifid fra sidustu faerslu. 


Fra Rotorua heldum vid sudur a boginn i leit ad betra vedri og fundum thad heldur betur i baenum Whakatane eda WhakaTANe eins og vid (eda frekar Bjarma og Asta) kusu ad kalla hann. Baerinn hafdi nu ekki upp a mikid meira ad bjoda en Tan, en hann var i rolegri kantinum. Hostelid sem vid svo fagmannlega voldum var svo rolegt ad allar setningar starfsmannanna endudu a "and keep it quite please", fint fyrir mann (Onnu) ad aefa sig i ad nota inniroddina sem mer skilst ad se thorf a. Naesta dag thotti okkur timabaert ad forda okkur ur gamlingjabaenum vel brenndar og saetar. Stefnan var tekin a Adrenalinbae numer 1 i Nyja Sjalandi Lake Taupo.

Vid akvadum ad hefja thetta i rolegheitum og skelltum okkiur i river rafting nidur Taungariro anna rett vid baejinn, sem var mega gaman og fengum vid ad stokkva ofan i iskalt vatnid og synda og laeti. Starfsmennirnir thar voru hressir sem annarsstadar i thessu landi hressleikans. En vid hofum sjaldan hitt jafn kammo og opid folk eins og her, her er folki greinilega ekki med vandreadalega genid i ser. Raftid var tho bara kidstuff midad vid thad sem fram undan var.

En i gaer 29.feb gerdist sa merkis atburdur ad vid allar unnum a okkar "helsta" otta og stukkum ur 15000 feta haed sem er hatt i 5000 metrar og thad haesta sem haegt er ad stokkva ur i heiminum. Eftir 7 minutna flug og  einnar minutu frjalst fall litum vid svona ut:

Image and video hosting by TinyPic

Thetta var snilld i alla stadi, vid vorum allar frekar skelkadar fyrir fram og attudum okkur ekki beinlinis a thvi ad vid vaerum virkilega ad lata verda ad thessu, en her er sonnunar gagn fyrir efasemdarfolkid. Ekki spilltu ofvirku gaejarnir sem stukku med okkur, en hressara folk finnst ekki, svo hressir ad their skyrpa hreinlega framan i mann af akefd thegar their tala, voda fint.

Sidustu dagar hafa einkennst af keyrslu, Bjarma litla er half bugud af allri thessari keyrslu en samkvaemt reglunum er hun su eina sem ma keyra thvi vid hinar erum svo asnalegar (ungar), heppin segdu sumir.

Ekki nog med thad ad vid seum djarfar ad stokkva ut ur flugvel tha erum vid lika svo djarfar ad boka ekki alltaf gistingu fyrir fram sem er voda fint. I stuttu mali erum vid komnar alla leid til Hamilton eftir um 8 tima keyrslu og urdum ad tjekka okkur inn a thetta fineriis hotel. Ekki slaemt svosem, en vid laerum hinsvegar a thessu, vonandi.

I gaer vorum vid i Wellington sem er sydsta borgin a nordur eyjunni, thad var agaett, gistum a risa sebrahosteli svo skelltum vid okkur ut a lifid gamlingja style en vorum komnar ansi snemma heim. Thad fyndna var samt ad vid hittum 2 thyskar stelpur a vappi sem hofdu verid med okkur i raftinu thaer fengu ad hanga med okkur, thvi vid erum svo toff.

Annars gengur allt voda vel vorum ad skella inn myndum endilega skoda, lika myndir fra Peru og einhverjar Argentinu myndir.

Image and video hosting by TinyPicImage and video hosting by TinyPic
Nordamynd i Hobbiton                                                              Maori gaejar

Svo ein omotstaedileg mynd i lokin med mega toffaranum sem stokk med mig (Onnu) og Totu ekki saman samt hoho.



Image and video hosting by TinyPic
fallhlifa Gaeji og Tota

Vid kvedjum ad sinni
Anna, Ásta, Bjarma, Tóta, Una
16 athugasemdir